Skip to content

Ríkarður Jónsson

Minn­is­varði um J.B. Charcot

Minnisvarði um J.B. Charcot / Ríkarður Jónsson

Width:

85 cm

Height:

116 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1952

Verkið er staðsett við Norð-austurhlið Öskju Lágmyndin er minnisvarði um Dr. Jean Baptiste Charcot (1867-1936), franskan vísindmann og lækni og skipsáhöfnina á rannsóknarskipi hans, Pourquoi-pas?, sem fórst við Íslandsstrendur árið 1936. Alls fórust 40 manns í sjóskaðanum. Charcot og menn hans komu oft við hér á landi í leiðöngrum sínum á norðurslóðir. Hann eignaðist fjölmarga vini hér á landi og hélt góðu sambandi við þá allt þar til yfir lauk. Strand Pourquoi pas? var því mikil sorgarfrétt á Íslandi á sínum tíma og til marks um það má nefna að þegar minningarsamkoma um hina látnu var haldin, var öllum verslunum í Reykjavík lokað, og mun það vera einsdæmi að erlendum manni sé sýndur viðlíka sómi.

More works by Ríkarður Jónsson

Jón Þorláksson Borgarstjóri Reykjavíkur 1933-1935
Ríkarður Jónsson
Jón Þorláksson Borgarstjóri Reykjavíkur 1933-1935 / Skúlptúr
View
Þorsteinn Erlingsson
Ríkarður Jónsson
Þorsteinn Erlingsson / Skúlptúr
View
Jón Vídalín (1666-1720)
Ríkarður Jónsson
Jón Vídalín (1666-1720) / Skúlptúr
View
Tryggvi Gunnarsson
Ríkarður Jónsson
Tryggvi Gunnarsson / Skúlptúr
View
Ingimundur Sveinsson, fiðluleikari
Ríkarður Jónsson
Ingimundur Sveinsson, fiðluleikari / Teikning
View
See all works (6)