Skip to content

Helgi Gíslason

Minn­is­merki um Georg Schier­beck

Minnismerki um Georg Schierbeck / Helgi Gíslason

Width:

48 cm

Height:

264 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1986

Verkið er staðsett í Fógetagarðinum á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Minnismerki um Schierbeck var afhjúpað í Víkurgarði árið 1986. Georg Schierbeck landlæknir fékk að nota garðinn til garðyrkju árið 1883 og stundaði þar ræktunartilraunir með matjurtir, blómjurtir, korntegundir, tré og runna. Silfurreynirinn fallegi sem stendur við Aðalstræti var upprunalega gróðursettur árið 1884 af Schierbeck. Georg hafði forgöngu um stofnun Garðyrkjufélagsins (Hins íslenska garðyrkjufélags) árið 1885. Minnismerki Helga Gíslasonar er höggmynd sem myndar eins konar stólpa eða veggflöt sem er brotinn upp. Verkið verður því sem kennileiti í Víkurgarði. Fyrir miðju á höggmyndinni er skjöldur með andlitsmynd af Georg Schierbeck úr kopar. Verkið ber sömu höfundareinkenni og önnur útiverk sem Helgi vann á þessum tíma. Það er unnið í raunsæjum anda, maðurinn er í öndvegi umlukinn efninu og hreyfingu þess. Verkið var gjöf Gísla Sigurbjörnssonar í Ási til borgarinnar.

More works by Helgi Gíslason

Viðræða
Helgi Gíslason
Viðræða / Skúlptúr
View
Minnisvarði um hjónin Thor Jensen og Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur
Helgi Gíslason
Minnisvarði um hjónin Thor Jensen og Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur / Skúlptúr
View
Án titils
Helgi Gíslason
Án titils / Skúlptúr
View
Minnismerki Kaldalóns
Helgi Gíslason
Minnismerki Kaldalóns / Skúlptúr
View
Davíð Oddson Borgarstjóri Reykjavíkur 1982-1991
Helgi Gíslason
Davíð Oddson Borgarstjóri Reykjavíkur 1982-1991 / Skúlptúr
View
Egill Skúli Ingibergsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1978-1982
Helgi Gíslason
Egill Skúli Ingibergsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1978-1982 / Skúlptúr
View
Birgir Ísleifur Gunnarsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1972-1978
Helgi Gíslason
Birgir Ísleifur Gunnarsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1972-1978 / Skúlptúr
View
Geir Hallgrímsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1959-1972
Helgi Gíslason
Geir Hallgrímsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1959-1972 / Skúlptúr
View
See all works (9)