Skip to content

Erró

La Bougie / Kertið

La Bougie / Kertið / Erró

Width:

75 cm

Height:

100 cm

Category:

Málverk

Year:

1985

Erró gerði margar myndasyrpur, klippimyndir og málverk, í byrjun níunda áratugar liðinnar aldar þar sem hann setti á svið glæsilegar og tælandi ungar stúlkur frá Norður-Afríku, ýmist naktar eða sveipaðar klæðum. Uppruna þessara mynda er að finna í miklu safni póstkorta frá nýlendutíma Frakka sem Erró fann á flóamarkaði í París. Fyrirmyndirnar, oftast vændiskonur, voru ljósmyndaðar á klisjukenndan hátt þar sem blandað var saman erótík og framandleika sem lýsti fyrst og fremst kynórum Vesturlandabúa. Í myndsyrpunum gengur Erró þvert á goðsagnir og klisjur um þessar „innfæddu“ konur og setur á svið aðra frásögn sem ætlað er að heiðra þessar þögulu og óþekktu hetjur. Í Kertinu nýtir hann sér ljósmynd af fagurri márískri ungmey ásamt hluta af uglumálverki (1860) eftir Jean-Jacques Aubusson og verki eftir Pieter Claesz, Kyrralíf með kerti (1627). Erró setur stúlkuna inn í fallegt og dularfullt umhverfi, hlaðið tilvísunum í auðlegð og ekki síður kunnáttu (bækur, gleraugu) og visku (ugla) að hætti endurreisnarmálara á borð við Hans Holbein yngri. Danielle Kvaran

More works by Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
View
Alia
Erró
Alia / Málverk
View
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
View
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
View
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
View
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
View
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
View
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
View
See all works (4.709)