Skip to content

Ólöf Nordal

Geir­fugl

Geirfugl / Ólöf Nordal

Width:

50 cm

Height:

120 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1998

Verkið er staðsett í fjöru fyrir neðan Skeljatanga í Skerjafirði. Geirfugl Ólafar er úr áli og er eftirlíking hins útdauða geirfugls. Verkið stendur á hnullungi úti fyrir fjörunni og vísar til Eldeyjar, þar sem síðustu tveir geirfuglarnir á Íslandi eru taldir hafa verið drepnir árið 1844. Íslendingar drápu parið fyrir erlendan safnara sem bauð háar upphæðir. Hann stendur á skeri í Skerjafirðinum og var upphaflega komið þar fyrir sem hluti af afmælissýningunni Strandlengjan sem Myndhöggvarafélag Reykjavíkur stóð fyrir árið 1998. Reykjavíkurborg festi kaup á verkinu árið 2000 og var því þá komið fyrir á ný á sama stað og stendur þar enn. Á bak við listaverkið Geirfugl býr margþætt merking sem sýnir skoðun Ólafar á þjóðarvitund Íslendinga og þjóðararfleifðinni. Geirfugl Ólafar í Skerjafirðinum horfir til Eldeyjar og bendir því áhorfandanum á vettvang „glæpsins“. Hann er enn fremur steyptur úr áli, þeim málmi sem Íslendingar hafa fórnað miklum náttúruauðlindum til þess að framleiða.

More works by Ólöf Nordal

Forystufé
Ólöf Nordal
Forystufé / Ljósmyndun
View
Forystufé
Ólöf Nordal
Forystufé / Ljósmyndun
View
Bríetarbrekka
Ólöf Nordal
Bríetarbrekka / Skúlptúr
View
Íslenskt dýrasafn - Sleipnir
Ólöf Nordal
Íslenskt dýrasafn - Sleipnir / Ljósmyndun
View
Íslenskt dýrasafn - Kýklópi
Ólöf Nordal
Íslenskt dýrasafn - Kýklópi / Ljósmyndun
View
Íslenskt dýrasafn - Janus
Ólöf Nordal
Íslenskt dýrasafn - Janus / Ljósmyndun
View
Gull (4)
Ólöf Nordal
Gull (4) / Ljósmyndun
View
Fjögurra laufa smárar
Ólöf Nordal
Fjögurra laufa smárar
View
See all works (12)