Erró
Fiskivíðátta
Width:
82 cm
Height:
59.6 cm
Category:
Grafík
Year:
1985
Erró lýsir Fiskivíðáttu sem einu af sínum mest krefjandi verkum en málverkið var marga mánuði í vinnslu. Hér er um grafík-útgáfu að ræða. Hann vann tvær klippimyndir við undirbúning verksins þar sem hann mótaði myndbygginguna. Í annarri þeirra er fiskunum raðað upp án dýptar en í hinni notar hann sellófan til að skapa þá sjónhverfingu að fiskarnir skjótist upp í loft. Fallhlífarstökkvararnir, sem bættust við síðar, falla ofan af himnum og skjóta á fiskana. Þeir eru vorkunnsverðar fígúrur, dæmdar til að hverfa á örfáum sekúndum, étnar af píranafiskum, en samt halda þeir áfram að skjóta þrátt fyrir tilgangsleysi gjörðarinnar og fullvissuna um eigin hverfulleika. Verkið, sem málað var á tíma Víetnamstríðsins, varpar á táknrænan hátt ljósi á fáránleika ofbeldis og baráttu sem er dæmd til að mistakast, sviðsett í iðandi ringulreið þar sem stöðug spenna er til staðar. Í dag má endurtúlka verkið í samhengi umhverfismála, ofnýtingar hafsins og röskunar á fæðukeðjum. Yfirgengileiki atburðarásarinnar verður þá eins konar fyrirboði um þann vistfræðilega harmleik sem við stöndum frammi fyrir.