Width:
64 cm
Height:
80 cm
Category:
Annað
Year:
2019
Anna Júlía hefur gert nokkur verk þar sem hún ímyndar sér að umhverfið sé að reyna að senda manninum skilaboð. Verkin eru steyptar lágmyndir sem minna á steingervinga. Titlar verkanna vísa í kallmerki í Mors-kóða þar sem tákn eru mynduð með stuttum og löngum einingum. Úr þessu verki má lesa: „Snúið við.“ Anna Júlía bendir á að kannski hefur maðurinn tapað hæfileika til að lesa í og skilja náttúrulegt umhverfi sitt.