Sverrir Haraldsson

Án titils

Málverk

Width:

58.5 cm

Height:

60 cm

Category:

Málverk

Year:

1952

Sverrir Haraldsson verður að teljast eitt af undrabörnum íslenskrar myndlistar. Fjórtán ára gamall var hann farinn að mála góðar landslagsmyndir, sextán ára var hann tekinn inn í Myndlista- og handíðaskóla Íslands í Reykjavík, yngstur íslenskra myndlistarmanna og tveimur árum síðar voru verk eftir hann tekin inn á haustsýningu FÍM. Sverrir hélt einkasýningu í Listamannaskálanum árið 1952 sem sýndi margvíslega hæfileika hans. Þó virtist hann framar öðru hafa áhuga á mjúklátri formgerð – bog- og sveiglínum og lífrænu myndmáli. Á árunum 1952–53 var listamaðurinn við nám í París og gekkst þar undir aga konkretlistar/strangflatalistar eins og þorri ungra íslenskra myndlistarmanna sem þar var við nám á þessu tímabili.