Hildur Hákonardóttir
3ja stéttin
Width:
34.5 cm
Height:
47.5 cm
Category:
Teikning
Year:
1973
Þessi skissa var gerð fyrir verkið 3ja stéttin sem einnig er í eigu safnsins. Konur voru vinnuafl til vara og kallaðar til starfa þegar þurfti að bjarga verðmætum í sjávarplássum. Þess á milli voru þær sendar heim ef ekki var vinna og nutu ekki vinnuverndar til jafns við karla. Verkakonur höfðu sótt um inngöngu í verkalýðsfélagið Dagsbrún til að styrkja stöðu sína en þeim hafði verið neitað og því standa þær eftir við veginn.
More works by Hildur Hákonardóttir
Hildur Hákonardóttir
Kvennafrídagurinn 1975. Vilborg Harðardóttir og allar konurnar sem bjuggu hann til. / Bóklist
View