Þórdís Erla Zoëga
Sólarhringur

Category:
Fjöltækni
Year:
2026
Verkið Sólarhringur var sýnt á um 500 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið dagana 1.–3. janúar 2026. Verkefnið nefnist Auglýsingahlé og er unnið í samstarfi Billboard, Y gallery og Listasafns Reykjavíkur. Sólarhringur hvetur til nýrrar hugsunar um samband manns, tækni og náttúru. Það leggur til að skjáir í borgarrými breytist með birtu dagsins og taki mið af librigðum sólarljóssins og áhrifum þess á himinhvolfið og náttúrulegan takt lífvera. Þannig verður stafræni skjárinn að sólarklukku sem sýnir takt lífsins, þar sem líftími frumunnar fylgir ljósaskiptum sólarhringsins í rauntíma. Innblásturinn kemur bæði úr örheimi frumunnar og víðáttu alheimsins. Þó þessir heimar séu ólíkir lúta þeir báðir náttúrulegum hringrásum. Verkið sýnir tengingu milli hins smæsta og hins stærsta - frumunnar og alheimsins - sem slær saman í einum takti: sólarhringnum.