
Ásmundarsafn
, til
Viðfansgefni Söru spanna allt frá flóru og fána til himingeimsins og í verkum sínum notar hún einstaka handverksfærni og útsjónarsemi til að skapa grípandi, sjónræna túlkun á aðkallandi málefnum. Í Ásmundarsafni mun Sara vinna með innra landslag manneskjunnar – tilfinningar, heilabylgjur og taugaboð – og skoða með hvaða hætti við mætum þeim og vinnum úr. Hvernig taka þær á sig mynd og verða hluti af sameiginlegri reynslu?
Hún mun skoða hvernig áreiti ytra umhverfis getur myndað hnúta, flækjur og stafla í innra lífi okkar – og hvernig slík form birtast í myndmáli, líkamlegri upplifun og tungumáli. Sköpunarferlið sjálft er í forgrunni, ekki aðeins sem afurð heldur sem aðferð: leið til að losa innri spennu og umbreyta tilfinningum í efnisleg form. Megnið af ferlinu verður unnið í Ásmundarsafni, í opnu samtali við gesti og í þeirra nærveru.
Undraland er verkefni tileinkað sögu Ásmundarsafns. Þar var heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) sem hann hannaði sjálfur og byggði á árunum 1942-1950. Lóðin var í túnfæti bæjar sem hét Undraland. Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg húsið og verk sín eftir sinn dag og var þar stofnað safn helgað minningu hans árið 1983. Þá fjóra áratugi sem listamaðurinn starfaði í húsinu var það vettvangur frjórrar listsköpunar. Yfir allt árið 2025 er listamönnum boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli. Sara Riel (1980) nam myndlist við Listaháskóla Íslands og Weißensee-listaháskólann í Berlín þaðam sem hún brautskráðist árið 2006. Hún er kunn fyrir veggverk í almannarými en um leið á hún verk víða í söfnum og hefur sýnt um víðan völl.