Gjörn­ingur: Hraun­bræðsla fyrir opnum tjöldum

til

Gjörningur: Hraunbræðsla fyrir opnum tjöldum

Gjörningur: Hraunbræðsla fyrir opnum tjöldum

Ásmundarsafn

til

Halldór Ásgeirsson er þriðji listamaðurinn sem dvelur í Undralandi og veitir gestum í Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn innsýn í ferlið að baki listsköpun sinni

Listsköpun Halldórs hefur ætíð verið samofin lífi hans og ferðum um heiminn. Tengsl á milli heimshluta koma berlega í ljós í hraunbræðsluverkum hans. Með þeim sýnir hann fram á tengsl á milli fjarlægra staða, bræðir hraun af ólíkum uppruna en fær fram samskonar svartan glerung. Halldór hefur útbúið stand þar sem hann getur hengt hraunmola sem hann hefur safnað frá ýmsum stöðum. Hann kemur standinum fyrir á stéttinni vestan megin við safnið og notar logsuðutækni til þess að bræða hraunið. Það verður rauðglóandi og dropar niður í járnskál fyrir neðan. Taumarnir storkna á leiðinni niður og mynda svarta fínlega glerþræði, svokallað nornahár. Á meðan Halldór dvelur í Undralandi tekur rýmið breytingum, innandyra og utan. Það er þess virði að líta við oftar en einu sinni til þess að fylgjast með framvindunni.

Gestum safnsins er boðið að fylgjast með hraunbræðslu Halldórs alla laugardaga í sumar kl. 15.00.