5. maí 2023 - 19:45

Tískusýning Kormáks & Skjaldar og Farmers Market

Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Farmers Market og Kormákur & Skjöldur munu sýna hönnun sína í formi tískusýninga í Listasafni Reykjavíkur föstudagskvöldið 5. maí.

Kormákur & Skjöldur munu sýna nýja Haust 2023 línu sína sem var einmitt sýnd á tískuvikunum í Flórens og Kaupmannahöfn við góðar undirtektir. Farmers Market mun kynna til leiks nýja hönnun í bland við klassískar flíkur í vörulínu sem hefur átt mikilli velgengni að fagna á síðustu árum.

Sýningin er einn af lykilviðburðum HönnunarMars 2023 og er í boði Bríó léttöl.

Sýningarnar verða aðskildar og gefst gestum þvi tækifæri á að sjá tvö góð íslensk hönnunarmerki á sömu kvöldstund.

Sýningin hefst kl.20.00.

Opnað verður með fordrykk og tónlist kl 19.45.
 

Verð viðburðar kr: 
0