21. maí 2022 - 14:00 til 17:00

Sýningaropnun – Útskriftasýning LHÍ: verandi vera

Sýningaropnun – Útskriftasýning LHÍ: verandi vera
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Verið hjartanlega velkomin á opnun útskriftarsýningar BA nemenda í myndlist, hönnun og arkitektúr, laugardaginn 21. maí milli kl. 14.00 - 17.00 á Kjarvalsstöðum.

Listasafn Reykjavíkur hefur í tæplega 20 ár hýst útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Á sýningunni getur að líta lokaverkefni 75 nemenda í myndlist, grafíska hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. Verkin á sýningunni endurspegla áherslur, nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin þrjú ár. 

Sýningin stendur til sunnudagsins 29. maí og er aðgangur ókeypis á meðan sýningunni stendur.

Sýningastjórar eru Hildigunnur Birgisdóttir (myndlist), Sara Jónsdóttir og María Kristín Jónsdóttir (hönnun & arkitektúr)

Verð viðburðar kr: 
0