9. júní 2022 - 20:00

Sýningaropnun: Spor og þræðir

Sýningaropnun: Spor og þræðir
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Þau líta ýmist til fortíðar og vinna með arfleifð handverks og hefðar, eða nýta nálina til þess að prófa sig áfram í framsæknum tilraunum í bland við aðra miðla. Á sýningunni verða ný og nýleg verk eftir fjölbreyttan hóp listamanna, bæði fulltrúa yngri kynslóðarinnar sem og reyndari listamenn sem þegar hafa sett mark sitt á íslenska myndlistarsenu. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið ástfóstri við nálina sem verkfæri sem skipar veigamikinn þátt í listsköpun þeirra. Verkin endurspegla mikla breidd í inntaki, þar sem glímt er við djúpstæð samfélagsmein samhliða ljóðrænu hversdagsins og ljúfsárri nostalgíu.

Sýningin fer með áhorfendur í ferðalag um þessa sértæku undirgrein textíllistar þar sem fjölbreytileikinn og sköpunargleðin ráða ríkjum. Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga á handverki, en á undanförnum árum hefur orðið algengara að listamenn víða um heim noti þessa hefðbundnu aðferð handverksins til að skapa fjölbreytt og spennandi listaverk. 

Listamenn: Agnes Ársælsdóttir, Anna Líndal, Anna Andrea Winther, Eirún Sigurðardóttir, Erla Þórarinsdóttir, Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Guðrún Bergsdóttir, G.Erla - Guðrún Erla Geirsdóttir, James Merry, Kristinn G. Harðarson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Loji Höskuldsson, Petra Hjartardóttir og Rósa Sigrún Jónsdóttir.

Sýningarstjórar: Birkir Karlsson og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.

Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík.