Sýningaropnun - Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld

Sýningin Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld verður opnuð laugardaginn 10. júní kl. 16.00 í Hafnarhúsi.
Á sýningunni gefur að líta úrval af þeim verkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast síðustu tvo áratugi. Verkin gefa innsýn inn í þá breidd og þær áherslur sem hafa verið að mótast og gerjast í íslensku listalífi frá aldamótum 2000 til dagsins í dag.
Valinn verður einn listamaður fyrir hvert ár 21. aldarinnar en sýningin tekur reglulegum breytingum þar sem listaverkum verður skipt út reglulega til sýningarloka.
Í ár fagnar Listasafn Reykjavíkur því að 50 ár eru liðin frá því að fyrsta aðsetur safnsins var formlega opnað á Kjarvalsstöðum.
Í tilefni tímamótanna er áhersla lögð á safneignina og tækfærið nýtt til til þess að skoða og sýna gersemar sem þar eru varðveittar. Sýningin er sú þriðja í sýningarröðinni Kviksjá sem er liður í þeirri áherslu en á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýningin Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld og fyrr á árinu var í Hafnarhúsinu sýningin Kviksjá erlendrar myndlistar.