18. nóvember 2023 - 16:00

Sýningaropnun — Hekla Dögg Jónsdóttir: 0° 0° Núlleyja

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Verið velkomin á opnun sýningarinnar 0° 0° Núlleyja í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum, laugardag 18. nóvember kl.16.00

Hekla Dögg er sjöundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans.

Núlleyja er ímyndaður staður á miðju hafsvæði Gíneuflóa. Þar á hnitakerfi jarðarkúlunnar sér upphafsviðmið í skurðpunkti miðbaugs og núllbaugs. Staðsetningarkerfið er mannanna verk rétt eins og dagatalið þótt maður leiði hugann sjaldan að því. Í verkum sínum skoðar Hekla Dögg Jónsdóttir slík grunnkerfi og beinir sjónum okkar áhorfenda að stað og stund. Hún teygir á hugmyndum okkar um „hér og nú“ og notar listina sem frjálst og opið rými þar sem hver og einn markar sér eigin viðmið. Verk hennar eru hverfull leikur á mærum hin hversdagslega og hins töfrandi þar sem óvæntar ummyndanir bjóða okkur að upplifa tilveruna í nýju ljósi.