15. júní 2023 - 20:00

Sýningaropnun - D48 Dýrfinna Benita Basalan: Langavitleysan

Langavitleysan
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Verið velkomin á 48. sýningu í sýningaröðinni D-salur sem hóf göngu sína árið 2007 þar sem listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu er boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni. 

Dýrfinna Benita Basalan (f.1992), einnig þekkt undir listamannsnafninu Countess Malaise, er fædd og uppalin á Íslandi. Árið 2018 útskrifaðist hún frá Gerrit Rietveld Academie með B.A. gráðu í myndlist og hönnun og hefur starfað síðastliðin ár sem myndlistarkona á ýmsum vettvöngum. Hún dregur myndheim sinn ýmist úr jaðar kúltúrum, manga, hinsegin menningu og persónulegri reynslu sinni sem blandaður einstaklingur. Dýrfinna er einn af þremur meðlimum Lucky 3 hópsins ásamt Melanie Ubaldo og Darren Mark sem vann hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2022. Nýlegar sýningar Dýrfinnu eru  Temprun (UwU)  í Gallerí Þulu og Lífsleikni í Listval Granda. Nýlegar sýningar Lucky 3 eru Lucky Me? í Kling og Bang og PUTI á Sequences X.

 

Verð viðburðar kr: 
0