21. maí 2023 - 14:00
28. maí 2023 - 14:00

Sunnudagsleiðsögn með Björk

Björk Hrafnsdóttir
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Á sunnudögum á Kjarvalsstöðum mun sérfræðingur frá safninu bjóða upp á leiðsögn um afmælissýningu safnsins, Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld.

Að þessu sinni mun Björk Hrafnsdóttir, sérfræðingur kynninga- og markaðsmála, fræða gesti safnsins um tilkomu og innihald sýningarinnar.

Hvaða listaverk eru þetta og eftir hverja? Hvaða sögu segja þau og hvernig endurspegla þau fortíð okkar og samtíma?

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.