19. ágúst 2023 - 15:00
Myndlistin þeirra: Marentza Poulsen og starfsfólk Klambra bistro

Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Á sýningunni Myndlistin okkar er kubbur þar sem settar verða upp smásýningar undir heitinu Myndlistin þeirra. Þar býður safnið samstarfsaðilum sínum og fastagestum gegnum árin að velja saman verk úr safneign LIstasafns Reykjavíkur eftir eigin höfði.
Marentza Poulsen og samstarfsfólk hennar á Klömbrum Bistro á Kjarvalsstöðum hefur valið listaverk í kubbinn og verður Marentza með leiðsögn um sýninguna kl. 15.00.
Gestasýningarstjórar eru Klambrar bistro, Bræðurnir Baldursson, Hlutverkasetur, Íslenski dansflokkurinn og nemendur í Víkurskóla.
Smásýningarnar standa aðeins rúma viku í senn og dreifast yfir sýningartímabilið.
Sýning: