23. mars 2019 - 13:00 til 15:00

Málþing: Staða kvenna í samhengi íslenskrar myndlistar

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Málþingið er haldið í tengslum við sýninguna Hringur, ferhyrningur og lína sem er fyrsta yfirlitssýningin sem haldin er á verkum Eyborgar Guðmundsdóttur.

Það hefur ekki farið mikið fyrir verkum Eyborgar síðustu áratugi þó hún hafi átt merkan feril sem teygði sig yfir á meginlandið í módernismann í París. Hún var afkastamikil á stuttum ferli sem spannaði aðeins um 15 ár en hún lést árið 1977 aðeins 53 ára að aldri.

Þátttakendur málþingsins velta fyrir sér stöðu kvenna í íslenskri listasögu með stöðu kvenna í alþjóðlegri listasögu til hliðsjónar. Einnig verður velt vöngum yfir vinnuumhverfi kvenna í myndlist.

ÞÁTTTAKENDUR

Hrafnhildur Schram, listfræðingur: Staða kvenna í myndlist í lok 19.aldar og fyrri hluta 20. aldar. 
Heba Helgadóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, sýningarstjórar: Erindi um sýninguna „Hringur, ferhyrningur og lína“. Farið verður í þá rannsóknarvinnu sem sýningin er byggð á og varpað ljósi á stuttan en kraftmikinn feril Eyborgar Guðmundsdóttur.
Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla), myndlistarmaður og listfræðingur: Staða kvenna í myndlist frá miðri 20. öld til loka hennar.
Sigríður Valdimarsdóttir: Erindi um niðurstöður úr MA ritgerð hennar „Konur í myndlist“ en þar fer hún yfir vinnuumhverfi kvenna í myndlist síðustu ár.

PALLBORÐ

Ragnheiður Jónsdóttir, myndlistarmaður
Sigríður Björnsdóttir, myndlistarmaður

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.