5. mars 2023 - 14:00
Leiðsögn sýningarstjóra: Rauður þráður

Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Sigrún Inga Hrólfsdóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Hildur Hákonardóttir:Rauður þráður sunnudaginn 5. mars kl. 14.00.
Skráning HÉR
Rauður þráður er fjölbreytt og yfirgripsmikil sýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur.
Hildur hefur á löngum starfsferli sínum tekið á málefnum samtíma síns og kynjapólitík og nýtt til þess fjölbreytta miðla, þó mest vefnað. Sýningin Rauður þráður veitir innsýn í feril Hildar og starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina sem eru samofnar þeim málefnum sem eru efst á baugi í samtíma okkar, einkum umhverfis- og jafnréttismál.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.