30. mars 2023 - 20:00

Leiðsögn sýningarstjóra – Kviksjá: Alþjóðleg safneign

Becky Forsythe sýningarstjóri
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Becky Forsythe sýningarstjóri verður með leiðsögn á ensku um sýninguna Kviksjá: Alþjóðleg safneign á fimmtudaginn langa kl. 20.00.

Á sýningunni gefst sjaldgæft tækifæri til að fá innsýn í þann hluta safneignar  Listasafns Reykjavíkur sem tileinkaður er alþjóðlegri myndlist.

Í gegnum tíðina hafa safninu borist gjafir frá listamönnum og velunnurum um víða veröld og eins hafa verk verið keypt í safneignina. Þá eru nokkur verk eftir heimskunna listamenn í almannarými borgarinnar og þar með í eigu og umsjón safnsins. Hér má nefna verk eftir þekkta listamenn eins og Barbara Westman, Dale Chiluly, Ian Hamilton Finley, Roni Horn, Patrick Huse, Karin Sander, Bernd Koberling, Lawrence Weiner, Carolee Schneemann, Jean Jacques Lebel, Alicja Kwade, Yoko Ono and Kazumi Nakamura.

Kviksjá er sýningaröð á verkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.