1. mars 2023 - 12:15
15. mars 2023 - 12:15
22. mars 2023 - 12:15
29. mars 2023 - 12:15
Gleym-mér-ei: Hádegistónleikar

Samstarfsaðili:
Listaháskóli Íslands
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Hádegistónleikaröðin Gleym-mér-ei hefur göngu sína á ný miðvikudaginn 8.febrúar 2023. Nemendur í söng og hljóðfæraleik við Listaháskóla Íslands flytja fjölbreytta dagskrá. Efnisskrá tónleikanna fléttast í kringum hin ýmsu viðfangsefni hverju sinni og gefst hlustendum færi á að kynnast allri flóru söngtónlistar. Tónleikarnir flytja sig um set og verða það sem eftir lifir vormisseris í Hafnarhúsi eftirfarandi miðvikudaga kl 12:15:
1. mars - Strengjahljómar
15.mars - Staðir
22. mars - Blásaratónlist
29.mars - Töfraflautan
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Gleym-mér-ei er samstarfsverkefni tónlistardeildar Listahákóla Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
Tenglar:
Verð viðburðar kr:
0