2. apríl 2023 - 11:00
Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja

Staður viðburðar:
Hafnarhús
Leikum að list! Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði.
Sunnudaginn 2. apríl kl. 11.00 verður fjölskylduleiðsögn og listasmiðja í Hafnarhúsi fyrir börn og fjölskyldur. Eftir stutta leiðsögn um sýninguna Kviksjá: Alþjóðleg safneign verður listasmiðja innblásin af samtímalist úr safneign.
Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða. Skráning í móttöku við komu.
Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.