Fimmtudagurinn langi: Hittingur og leiðsögn

Síðasti fimmtudagur mánaðarins er Fimmtudagurinn langi!
Dagskrá Listasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 24. febrúar 2022
Ókeypis aðgangur í Hafnarhús og á Kjarvalsstaði frá kl. 17-22.00 – allir velkomnir!
Hafnarhús
Kl. 20.00
Abrakadabra hittingur: Ilmur María Arnarsdóttir ungur listunnandi og Halla Margrét Jóhannesdóttir, verkefnastjóri miðlunar, verða með leiðsögn og samtal um sýninguna Abrakadabra – töfrar samtímalistar. Skráning HÉR
Sýningar: Abrakadabra – töfrar samtímalistar, D46 Ásgerður Birna Björnsdóttir: Snertitaug, Ferðagarpurinn Erró og Erró: Tilraunastofa.
Kjarvalsstaðir
Kl. 20.00
Leiðsögn: Aldís Snorradóttir, verkefnastjóri sýninga, verður með leiðsögn um sýninguna Eins langt og augað eygir. Skráning HÉR
Sýningar: Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir og Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum
Klambrar Bistro opið til kl. 22.00.
Fjöldi safna og sýningastaða býður upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlist í miðborginni!