Berglind Jóna Hlynsdóttir: Biðin er löng − Tollhúsið 1. bindi


Biðin er löng - Tollhúsið 1. bindi er yfirskrift nýs verks sem staðsett er á þaki Tollhúss Reykjavíkur í Tryggvagötu. Verkið er byggt á rannsókn Berglindar Jónu á sögu hússins og svæðinu þar í kring. Frá því að framkvæmdir hófust við húsið árið 1967 hefur það og svæðið umhverfis tekið miklum breytingum. Í takt við fólksfjölgun í borginni, breyttar þarfir í samgöngum og umsvifum hafnarinnar, vaxandi bílaumferð og nýjar áherslur í skipulagsmálum hafa komið fram mismunandi tillögur um hlutverk Tollhússins í borgarskipulaginu. Þær hafa ýmist ekki komist til framkvæmdar eða ekki verið kláraðar að fullu. Þó má enn greina ummerki um framtíðarsýn fortíðar í byggingunni sjálfri, umhverfinu og núverandi áformum fyrir svæðið. Berglind Jóna veltir fyrir sér þeirri framtíð sem ekki varð, hvar við erum stödd í samtímanum og þeim framtíðarhorfum sem nú birtast í nánasta umhverfi byggingarinnar. Verkið er unnið í samstarfi við tónskáldið Pál Ivan frá Eiðum.
Opnun sunnudag 15. september, kl. 15:00
Opið mán. - fös. 10:00 - 16:00, fim. 10:00 - 20:00, lau. - sun. 13:00 - 17:00
Lokað lau. 20. sept.
Berglind Jóna Hlynsdóttir (f. 1979) vinnur í fjölbreytta miðla og beinir sjónum gjarnan að sögu og hlutverki manngerðra staða í almannarými. Hún útskrifaðist með BA gráðu í Myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MA gráðu frá Valand listaháskólanum í Gautaborg í Svíþjóð árið 2010.
Sýningin Haustlaukar - Ný myndlist í almannarými stendur utan safnhúsa Listasafns Reykjavíkur í september. Fimm myndlistarmenn sýna ný verk sem birtast á fjölbreyttan og nýstárlegan hátt víða um Reykjavík og í því sameiginlega rými sem tækni samtímans býður upp á. Listamennirnir eru: Ásgerður Birna Björnsdóttir, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Curver Thoroddsen, Snorri Ásmundsson og Þóranna Björnsdóttir. Fylgist með dagskrá sýningarinnar á dagskrársíðu safnsins og á samfélagsmiðlum. Árið 2019 er ár listar í almannarými hjá Listasafni Reykjavíkur og er sýningin hluti af því samhengi ásamt fleiri sýningum, viðburðum og miðlunarstarfi. Sýning Berglindar stendur til 29. September 2019.
Sýningin er styrkt af myndlistarsjóði.