Auglýsingahlé Billboard: Hrafnkell Sigurðsson

Myndlistarmaðurinn Hrafnkell Sigurðsson hefur verið valinn til þess að sýna nýtt verk sitt Upplausn á 350 skjám Billboard um alla borg í byrjun næsta árs.
Billboard, sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og við gatnamót í Reykjavík, efndi til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almannarými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur. Yfir tímabilið 1.–5. janúar 2022 verður Auglýsingahlé á yfir 350 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg. Þessi tími verður helgaður sýningu á verkinu Upplausn eftir Hrafnkel Sigurðsson en hann var valinn úr hópi 50 umsækjenda.
Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu sýningartímabilinu.
Verkið verður sýnt á yfir 350 skjáum um alla borgina, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum við fjölfarnar götur.
Dómnefndin var skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM.
Verkefninu er ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa fólki tækifæri á að njóta listar um alla borg.