Jóhannes S. Kjarval

Jóhannes S. Kjarval

Jóhannes S. Kjarval

Kjarvalsstaðir

-

Þekktustu verk Kjarvals eru án efa hinar glæsilegu landslagsmyndir hans. Sumir staðir áttu sinn sérstaka sess í verkum hans, svo sem Þingvellir og Borgarfjörður eystri, og til eru fjölmargar myndir Kjarvals frá þessum stöðum. En Kjarval gerði fleira en landslagsmyndir, sem skapandi listamaður var fátt á hinu listræna sviði, sem hann lagði ekki fyrir sig að meira eða minna leyti.

Á þessari sumarsýningu eru kynntar uppstillingar og kyrralífsmyndir Kjarvals, en þessi þáttur listsköpunar hans hefur að nokkru fallið í skuggann á sýningum á list Kjarvals til þessa..