Veldu ár
D48 Dýrfinna Benita Basalan: Langavitleysan
Dýrfinna Benita Basalan (f.1992), einnig þekkt undir listamannsnafninu Countess Malaise, er fædd og uppalin á Íslandi. Árið 2018 útskrifaðist hún frá Gerrit Rietveld Academie með B.A. gráðu í myndlist og hönnun og hefur starfað síðastliðin ár sem myndlistarkona á ýmsum vettvöngum. Hún dregur myndheim sinn ýmist úr jaðar kúltúrum, manga, hinsegin menningu og persónulegri reynslu sinni sem blandaður einstaklingur. Dýrfinna er einn af þremur meðlimum Lucky 3 hópsins ásamt Melanie Ubaldo og Darren Mark sem vann hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2022. Nýlegar sýningar Dýrfinnu eru Temprun (UwU) í Gallerí Þulu og Lífsleikni í Listval Granda. Nýlegar sýningar Lucky 3 eru Lucky Me? í Kling og Bang og PUTI á Sequences X.
Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.