Ný lista­verk í almanna­rými eftir Sigurð Árna Sigurðsson og Helga Má Krist­ins­son.

Nýverið hafa verið sett upp ný listaverk eftir þá Sigurð Árna Sigurðsson og Helga Má Kristinsson við Center hótelið á Héðinsreit.

Í samningum Reykjavíkurborgar og lóðarhafa eru sett fram markmið um að ákveðinni fjárhæð verði varið í listsköpun í almannarýmum á uppbyggingarsvæðum til að tryggja gæði og gott umhverfi í borginni. Verkin voru valin úr innsendum tillögum í samkeppni sem haldin var vegna listaverka í almannarými á Héðinsreit.

Verk Sigurðar Árna, Leikur með ljós og skugga í inngarði við Seljaveg 2 á Héðinsreit er stórt veggverk á gluggalaust stigahús. Veggurinn snýr í norð/vestur og er í skugga eins og inngarðurinn sjálfur að stórum hluta. Hugmyndin að baki verkinu er aðfæra stöðuga birtu og sól á vegginn. Með gulum lit og einfaldri teikningu eru mynduð ímynduð göt sem varpa skugga á ómálaða sjónsteypu. Einföld sjónblekking myndar samtal og tengir við form lofttúðu sem stendur áberandi upp úr miðjum garðinum, grunnflöt garðsins og bogadregna bygginguna. Sigurður Árni Sigurðsson hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Hann var fulltrúi Íslands á Tvíæringnum í Feneyjum árið 1999, verk eftir hann var valið táknmynd Reykjavíkur, Menningarborgar Evrópu árið 2000 og árið 2020 var stór yfirlitssýning sett upp í Listasafni Reykjavíkur þar sem farið var yfir feril listamannsins frá upphafi til dagsins í dag. Hann er virkur þátttakandi í íslensku myndlistarlífi, bæði með sýningum, kennslu og umræðu. Sigurður Árni hefur starfað sem gestakennari við Listaháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur og við Listaháskólann í Montpellier - École Supérieure des Beaux Arts Montpellier í Frakklandi og haldið fyrirlestra um myndlist bæði á Íslandi og í Frakklandi. Auk þess að eiga verk á öllum helstu listasöfnum landsins, opinberum- og einkasöfnum víða erlendis hafa stærri verk verið sett upp eftir hann á opinberum stöðum. Má þar nefna útilistaverkið Sólalda við Sultartangavirkjun, Ljós í skugga í Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, útilistaverkið L‘éloge de la nature í bænum Loupian í Suður-Frakklandi og vegglistaverkið Sól úr norðri á Vinastræti 14-16 í Urriðaholti í Garðabæ. Verk Helga Más Kristinssonar, Leiðni, er veggverk sem staðsett er í undirgöngum sem liggja frá Seljavegi og inn í inngarðinn á Héðinsreit. Litir og form verksins sækja innblástur til hlutverks rýmisins sem leiðir gesti inn í bygginguna og inngarðinn, en einnig til fyrra hlutverks byggingarinnar sem eittsinn hýsti málmsmiðjuna Héðinn. Einnig er vísað til þess þegar að veggjalistamenn fundu sér athvarf á svæðinu í því millibilsástandi sem skapaðist áður núverandi uppbygging hófst. Helgi býr og starfar í Reykjavík, en hann útskrifaðist frá LHÍ árið 2002 og hefur sýnt á fjölmörgum einka- og samsýningum síðan þá auk þess að starfa sem sýningarstjóri og verkefnastjóri viðamikilla sýninga, m.a. hjá Listasafni Reykjavíkur. Helgi hefur að auki gert leik- og sviðsmyndir fyrir leikhús, dansflokka, tískusýningar, hönnunarsýningar og bíómyndir.

Sigurður Árni Sigurðsson, Leikur með ljós og skugga, 2025
Sigurður Árni Sigurðsson, Leikur að ljósi og skugga, 2025
Helgi Már Kristinsson, Leiðni, 2025
Helgi Már Kristinsson, Leiðni, 2025