Listaverk vikunnar: Svarta keilan

Svarta keilan eftir Santiago Sierra frá 2012.

Listaverk vikunnar er Svarta keilan eftir Santiago Sierra frá 2012. Verkið er staðsett á Austurvelli.

Verkið samanstendur af 180 cm háum steini sem hefur verið klofinn í tvennt með svartri keilu sem situr eftir í sprungunni. Keilan vísar til svartra keilulaga hatta sem spænski rannsóknarrétturinn lét sakfellda menn bera í háðungarskyni á 12. öld. Með verkinu vill listamaðurinn minna á mikilvægi borgaralegra réttinda í lýðræðissamfélagi og þann rétt þegnanna að neita því að hlýðnast óréttlátum lögum og kröfum yfirvalda. Á minnisvarðanum er plata sem á er letruð á íslensku og ensku setning úr yfirlýsingu um réttindi manna og borgara sem birtist sem formáli að stjórnarskránni sem franska þingið samþykkti árið 1793: „Þegar ríkisstjórn brýtur á rétti þegnanna, þá er uppreisn helgasti réttur og ófrávíkjanlegasta skylda þegnanna sem og hvers hluta þjóðarinnar.“

Verkið var fyrst sett upp á Austurvelli í janúar 2012 í tengslum við yfirlitssýningu á heimildarkvikmyndum og myndböndum Santiagos Sierra í Hafnarhúsi. Að sýningunni lokinni bauð listamaðurinn Reykjavíkurborg minnisvarðann að gjöf og það þáði borgarstjórn. Staðsetning verksins við alþingishúsið og Austurvöll er vel við hæfi því að alþingishúsið er helsta tákn lýðræðis á Íslandi og Austurvöllur er staðurinn þar sem almennir borgarar koma saman til að mótmæla þegar þeim þykir ríkisvaldið beita þá órétti. Verkið tengist umhverfinu einnig í efnisvali því að steinninn er grágrýti eins og alþingishúsið sjálft og stöpullinn undir styttu Jóns Sigurðssonar.

Santiago Sierra (f. 1966) býr og starfar í Madrid á Spáni. Hann stundaði þar nám og síðar í Hamborg og Mexíkóborg. Fyrir síðustu aldarmót voru verk Sierra frekar mínímalísk og voru þátttakendurnir sjálfir lítið áberandi. Það breyttist og upp úr aldarmótunum 2000 var þátttaka fólks í forgrunni verkanna. List Sierra einkennist af pólitík og ádeilu, en hann reynir að varpa ljósi á bág kjör undirmálsfólks í samfélaginu. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín, bæði vegna þeirrar ádeilu sem í þeim felst en ekki síst fyrir þær aðferðir sem hann beytir við gerð þeirra og þykir á stundum fara út fyrir velsæmismörk. Verk Sierra hafa verið sýnd í mörgum af helstu samtímalistasöfnum heims. Santiago Sierra var fulltrúi Spánar á Feneyjatvíæringnum 2003.

Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur. Hlaðið niður snjallforriti safnsins, Útilistaverk í Reykjavík, ókeypis fyrir Android og IOS.