Kærleikskúlan 2022: Karin Sander

Kærleikskúlan 2022: Karin Sander
Samstarfsaðili/-ar: 
Styrktarfélag- lamaðra og fatlaðra

Í dag var  Kærleikskúla ársins 2022 afhjúpuð í 20. skipti við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi að viðstöddum fjölmörgum gestum.

KÚLA MEÐ STROKU eftir Karin Sander er Kærleikskúla ársins 2022. Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. Þetta er í tuttugasta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna.

Þýska listakonan Karin Sander (f. 1957) er einn fremsti og afkastamesti listamaður sinnar kynslóðar. Hún býr og starfar í Berlín og Zürich en hefur verið viðloðandi íslenskt listalíf síðan snemma á tíunda áratugnum. Í listsköpun sinni rýnir hún í tilbúnar aðstæður og rými út frá formgerðar-, félags- og sögulegu samhengi og gerir sýnileg á ólíka vegu með hjálp ýmissa miðla. Verk hennar hafa verið sýnd á einkasýningum og tvíæringum um allan heim og finnast í opinberum söfnum og safneignum víða um lönd. Hún hefur gegnt prófessorstöðu í arkitektúr og listum við ETH (Swiss Federal Institute of Technology) í Zürich síðan 2007. Sander verður, ásamt Philip Ursprung, fulltrúi Sviss á átjánda alþjóðlega arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum 2023. 

Um verkið: Rauð pensilstroka svífur í trénu, málningarvottur á stökkri glerkúlu, liturinn ljómar og hreyfist, sem tákn um endapunkt ársins. Karin Sander strýkur penslinum einu sinni ákveðið eftir gagnsærri Kærleikskúlunni. Verknaðurinn er skýr listræn athöfn þar sem þykk málningarstrokan situr eftir á sléttu, kúptu yfirborði kúlunnar, sjáanleg í þrívídd frá öllum hliðum, einnig gegnum íhvolfu hliðina. Strokan er tjásuleg í annan endann og afhjúpar þannig seigju málningarinnar og lýsir athöfn sem er í senn varfærin og röskleg. Liturinn sjálfur sker sig úr umhverfinu á áberandi hátt og verður tákn um aðgát og sjálfsígrundun. Kúla með stroku er því hreyfanlegt, síbreytilegt málverk þar sem staðsetningin verður hluti af málverkinu sjálfu.

KÚLA MEÐ STROKU kemur í verslanir um land allt á morgun, fimmtudaginn 8. desember. Í tilefni af útgáfu tuttugustu Kærleikskúlunnar í ár hefur listakonan Karin Sander útbúið og gefið Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, sérstakt verk í tuttugu eintökum undir heitinu Kúla. Afhjúpun sérútgáfu Kærleikskúlunnar fer fram 9. desember í i8 gallerí við Tryggvagötu.  Sala Kærleikskúlunnar skipar stóran sess í fjáröflunarstarfi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og verður kúlan til sölu í öllum safnverslunum Listasafns Reykjavíkur. Sölutímabil Kærleikskúlunnar er 8.-23. desember og kostar kúlan 7400kr.  Sjá nánar: Kærleikskulan.is

Handhafi Kærleikskúlunnar í ár er Steinunn Ása Þorvaldsdóttir sem er orðin þjóðþekkt fyrir réttindabaráttu sína fyrir fatlaða sem og vaska framgöngu í sjónvarpi í þáttaröðinni Með okkar augum á RÚV.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hóf útgáfu Kærleikskúlunnar árið 2003 og er ÞÖGN því átjánda kúlan. Úr er orðið fjölbreytt safn listaverka eftir marga af okkar þekktustu listamönnum. Fyrri listamenn Kærleikskúlunnar eru Erró, Ólafur Elíasson, Rúrí, Gabríela Friðriksdóttir, Eggert Pétursson, Gjörningaklúbburinn, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Sigurðardóttir, Yoko Ono, Hrafnhildur Arnardóttir, Ragnar Kjartansson, Davíð Örn Halldórsson, Ragna Róbertsdóttir, Sigurður Árni Sigurðsson, Egill Sæbjörnsson, Elín Hansdóttir og Ólöf Nordal, Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Finnbogi Pétursson. Hægt er að nálgast eldri Kærleikskúlur í netversluninni www.kaerleikskulan.is