Hekla Dögg Jónsdóttir á haustsýningu á Kjarvalsstöðum 2023

Við opnun yfirlitssýningarinnar Guðjón Ketilsson: Jæja laugardaginn 1. október var tilkynnt að næsti listamaður til að taka þátt í haustsýningu á Kjarvalsstöðum verður Hekla Dögg Jónsdóttir.

Hekla Dögg er fædd 1969 og er sjöundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.

Hekla Dögg stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1991 – 1994. Hún sótti skiptinám við Listaháskólann í Kiel í Þýskalandi og viðbótarnám við Staatliche Hochschule für Bildende Künste í Frankfurt am Main. Að loknu námi í Þýskalandi hélt Hekla til Bandaríkjanna til náms við Listaháskólann í Kalíforníu, California Institute of the Arts þaðan útskrifaðist hún með BFA gráður 1996 og MFA gráðu árið 1999. Allt frá útskrift hefur Hekla verið virk í sýningarhaldi og hefur sýnt í söfnum og á öðrum sýningarstöðum bæði hér heima og erlendis, meðal annars í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Tate Modern safninu í London og Truck samtímalistamiðstöðinni í Calgary í Kanada. Hekla hefur gegngdi stöðu prófessors í myndlist við Listaháskóla Íslands frá árinu 2012 til 2021 og er einn af stofnendum og er meðlimur Kling & Bang.