15.09.2023
Góðir gestir heimsóttu Listasafn Reykjavíkur


Maša Vlaović, Menningarmálaráðherra Svartfjallalands og Vladislav Šcepanović, safnsstjóri hins nýstofnaða Samtímalistasafnsins Svartfjallands, heimsóttu Listasafn Reykjavíkur í vikunni og ræddu samstarf og samvinnu vegna fyrirhugaðrar sýningar á verkum Errós í Svartfjallalandi.
Sýningin verður opnuð í mars 2024 á Samtímalistasafninu en á henni verða yfir fimmtíu verk listamannsins. Á fundinum kom fram einlægur áhugi á samstarfi safnanna og til þess var tekið að Ísland hefði verið fyrsta landið sem viðurkenndi sjálfstæði Svarfjallalands árið 2006.