21.03.2017
Friðarsúlan lýsir upp kvöldhimininn

Friðarsúlan í Viðey mun lýsa upp kvöldhimininn á jafndægri á vori, dagana 20. mars til 27. mars. 20. mars 2017 eru liðin 48 ár síðan listakonan Yoko Ono giftist John Lennon árið 1969. Ono og Lennon vörðu hveitibrauðsdögum sínum í hjónarúminu í mótmælaskyni við stríðið í Víetnam.
Ljósgeisla friðarsúlunnar er einmitt ætlað að minna fólk á frið og mun hann lýsa upp kvöldhimininn á vorjafndægri þegar sólin er beint yfir miðbaug jarðar og dagur og nótt um það bil jafnlöng um alla jörð. Friðarsúlan mun loga þar til sólin kemur upp að morgni mánudagsins 27. mars.
Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu hér.