Fjallamjólk á Kjarvalsstöðum

Jóhannes S. Kjarval, Fjallamjólk

Eitt kunnasta verk Jóhannesar S. Kjarvals, Fjallamjólk, er nú sýnt á Kjarvalsstöðum.  Verkið er í eigu Listasafns ASÍ sem hefur góðfúslega lánað það á nýja sýningu sem ber yfirskriftina Kjarval og 20. öldin - Þegar nútíminn lagði að. Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900. Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi. 

Verkið Fjallamjólk var málað á Þingvöllum þar sem listamaðurinn leitaði oft fanga og sýnir Flosagjá með Ármannsfell í bakgrunni. Kjarval gerði svartkrítaruppkast af verkinu á Þingvöllum en vann síðan málverkið á vinnustofu sinni við Austurstræti.

Verkið var upphaflega í eigu systursonar Kjarvals en Ragnar Jónsson í Smára eignaðist það síðar. Hann færði svo Alþýðusambandi Íslands listaverkasafn sitt að gjöf árið 1961 og lagði þar með grunninn að Listasafni ASÍ. Sagan hermir að fyrsti stjórnandi MoMA-safnsins í New York, Alfred H. Barr, hafi í heimsókn sinni til Íslands hrifist mjög af Fjallamjólk og falast eftir verkinu til kaupa fyrir safnið. Ragnar í Smára gat ekki hugsað sér að selja verkið og senda það úr landi og hafnaði því boði Barrs.

Opið er á Kjarvalsstöðum alla daga frá kl. 10 -17. 

Frítt inn fyrir handhafa Menningarkorts og Árskorts.

Börn 18 ára og yngri greiða ekki aðgangseyri.