Barnamenningarhátíð í Reykjavík – LÁN: Listrænt ákall til náttúrunnar

Samsýning 15 leik- og grunnskóla á Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
Á morgun, þriðjudag 20. apríl kl. 10.30, opnar borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, sýninguna LÁN: Listrænt ákall til náttúrunnar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi að viðstöddum börnum frá leikskólanum Sæborg.
Sýningin er afar umfangsmikil – afrakstur samstarfs 800 barna í 15 skólum í Reykjavík, ótal listafólks, vísindafólks, kennara, Listasafns Reykjavíkur, Borgarbókasafnsins, Skóla- og frístundasviðs og Barnamenningarhátíðar. Sýningin fer fram í porti og fjölnotasal Hafnarhússins, í fundarherbergi Kjarvalsstaða.
Frítt er inn á sýninguna fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Sýningin er afrakstur þróunarverkefnis LÁN, sem er liður í innleiðingu nýrrar menntastefnu í Reykjavík - Látum draumana rætast - og byggir á þverfaglegri nálgun þar sem nemendur fjalla um málefni náttúrunnar á skapandi hátt með aðferðum list- og verkgreina. Verkefnið ýtir undir jákvæða sjálfsmynd nemenda, styrkir gagnrýna hugsun og trú þeirra á eigin getu, ýtir undir nýsköpun og stuðlar að skapandi kennsluháttum. Þá er verkefninu ætlað að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Sýningarstjóri: Ásthildur B. Jónsdóttir, verkefnastjóri LÁN
Börn úr fimmtán leik- og grunnskólum taka þátt í sýningunni, það eru Álftamýraskóli, Engjaskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Hagaskóli, Húsaskóli, Landakotsskóli, Laugalækjaskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli, Seljaskóli, Sæborg, Vesturbæjarskóli, Vogaskóli og Ægisborg.
Þeir listamenn sem tekið hafa þátt eru: Agnes Hansdóttir, Alda Rose Cartright, Alexía Rós Gylfadóttir, Anna Jóa, Anna Líndal, Ari Hlynur Yates, Ásrún Ágústsdóttir, Ásthildur Jónsdóttir, Björk Guðnadóttir, Brynja Emilsdóttir, Dagný Sif Einarsdóttir, Elsa Nore, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Guðrún Lárusdóttir, Gunndís Ýr Finnbogasdóttir, Halla Birgisdóttir, Halla Dögg Önnudóttir, Halldóra Gestsdóttir, Hanna Gréta Pálsdóttir, Hrafnhildur Úlfarsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Jelena Bjeletic, Jóhann Kristófer Stefánsson, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Kristín Bogadóttir, Louise Harris, Magnús Valur Pálsson, Margrét Blöndal, María Sjöfn Dupius Davíðsdóttir, Perla Hafþórsdóttir, Ragnhildur Katla Jónsdóttir, Rakel Andrésdóttir, Sesselja Tómasdóttir, Soffía Guðrún Jóhannsdóttir, Sædís Harpa Stefánsdóttir, Unnur Björnsdóttir, Ýr Jóhannsdóttir, Þorgerður Ólafsdóttir, Þórdís Erla Zoëga, Þórey Hannesdóttir og Þórunn Birgisdóttir.
LÁN sýnir einnig í Grasagarðinum í Reykjavík, Borgarbókasafninu Í Grófinni og Spönginni og í Listasafni Íslands.