Auglýsingahlé Billboard 2023: Sigurður Ámundason valinn

Dómnefnd og listamaður Billboard 2023
Samstarfsaðili/-ar: 
Y gallerí
Billboard

Í haust efndi Billboard, í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur, til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými. Er þetta í annað sinn sem Auglýsingahlé fer fram á stafrænum flötum Billboard, en í fyrra var það Hrafnkell Sigurðsson sem bar sigur úr býtum.

Dagana 1.–3. janúar 2023 verður Auglýsingahlé á yfir 450 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið þegar sýnt verður nýtt verki eftir myndlistarmanninn Sigurð Ámundason sem valinn var úr hópi yfir 40 umsækjenda. Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Sigurðar dag hvern og er verkefnið  frábær vettvangur fyrir myndlist í  almenningsrými. Því er ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina.

Sigurður lýsir verkinu á þennan hátt: "Póst-strúktúralismi, óræðni og efi eru undirstöður verkanna. Merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert en líta stórt á sig, bera númer og íslenska stafi í handahófskenndri röð. Tákn sem tákna tákn, sem snúast um sjálf sig, leiðarvísar sem í raun leiða ekki neitt." 

Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard. Verkið verður sýnt á yfir 450 skjáum um alla borgina, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við fjölfarnar götur. Valnefnd var skipuð skipuð þeim  Sigurði Atla Sigurðssyni (Y gallerí), Björk Hrafnsdóttur (Listasafn Reykjavíkur), Jóni Felix Sigurðssyni (Billboard) og Elísabetu Stefánsdóttur (SÍM).