Aðgengi á Kjarvalsstöðum

Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir eru við Flókagötu 24. Á Kjarvalsstöðum eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) enda skipar hann sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar. Þar eru jafnframt sýningar á málverkum og skúlptúrum eftir nafnkunna innlenda og erlenda meistara nútímalistar.

Tímalengd heimsóknar

Gott er að gera ráð fyrir 40-60 mínútum í heimsókn í Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaði.

Heimsókn á Kjarvalsstaði
Upplýsingar (i)

Inngangur

Gengið er inn um aðalinngang Flókagötumegin. Að dyrunum er rampur og hurðin opnast sjálfkrafa. Í dyragætt er þröskuldur sem starfsfólk setur ramp yfir eftir þörfum. Þegar inn er komið blasir móttakan við og safnbúð á hægri hönd.

Bílastæði

Fjölmörg bílastæði eru framan við Kjarvalsstaði.

Hjól og rafskútur

Hjólastandar eru í portinu fyrir miðju húsi.

Almenningssamgöngur

Strætisvagnar nr. 13 – 1 – 3 – 6 – 11 – 18.

Barnakerrur

Á Kjarvalsstöðum er hægt að geyma barnavagna og fá lánaðar léttar kerrur. Stórir barnavagnar eru ekki leyfðir í sýningarsölunum af öryggisástæðum.

Fatahengi og læstir skápar

Við hlið safnbúðarinnar hjá móttökunni er fatahengi og þar eru líka læstir skápar fyrir töskur og bakpoka. Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferðarmiklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum af öryggisástæðum.

Salerni

Salerni eru á gangi hægra megin við móttökuna.

Lyftur

Kjarvalsstaðir eru á einni hæð.

Stólar/aðstaða til að setjast niður

Sýningarnar breytast reglulega en venjulega má gera ráð fyrir bekkjum í öllum sýningarsölum. Þá standa gestum til boða meðfærilegir safnakollar í móttöku sem hægt er að taka með undir hendinni og tylla sér á eftir þörfum. 

Nestisaðstaða

Á Kjarvalsstöðum er veitingastaður sem selur bæði mat og kaffi. Þar er ekki nestisaðstaða en á góðviðrisdögum er hægt að borða eigið nesti úti á Klambratúni.

Hugmyndasmiðjan

Hugmyndasmiðjan er barna- og fjölskyldustofa við hliðina á veitingastaðnum. Þar eru bækur, blöð, litir og ýmislegt fleira efni tengt sýningum hverju sinni.

Leiðsagnir

Reglulega eru haldnar leiðsagnir á einstökum sýningum og eru þær auglýstar sérstaklega. Starfsmenn safnsins taka vel á móti hópum eftir samkomulagi. Smellið hér til að fá upplýsingar um dagskrá safnsins. 

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Hreyfihamlaðir
Hreyfihamlaðir

Kjarvalsstaðir voru opnaðir almenningi árið 1973 þegar kröfur um aðgengi voru aðrar en í dag. Í dyrum við aðalinngang og í dyrum á milli kaffihúss og ports eru þröskuldar. Hjólastólarampar eru aðgengilegir á báðum stöðum.

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru beint fyrir framan aðalinngang Kjarvalsstaða.

Hjólastólar

Einn hjólastóll er í boði til láns fyrir gesti og er í fatahengi. Frekari upplýsingar í móttöku safnsins. 

Stólar/aðstaða til þess að setjast niður á sýningum

Sýningarnar breytast reglulega en venjulega má gera ráð fyrir bekkjum í öllum sýningarsölum. Þá standa gestum til boða meðfærilegir safnakollar í móttöku sem hægt er að taka með undir hendinni og tylla sér á eftir þörfum. 

Salerni

Salerni er að finna á gangi hægra megin við móttökuna og þar eru jafnframt salerni fyrir hreyfihamlaða.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Einhverfir og fólk með skynúrvinnsluvanda
Skynvinnsla

Í almennum heimsóknum á Listasafn Reykjavíkur gildir aðgöngumiði í 24 klukkustundir svo að hægt er að koma og fara á öll þrjú safnhúsin á þeim tíma; Kjarvalsstaði, Hafnarhús og Ásmundarsafn.

Áreiti

Áreiti er misjafnt eftir hverri sýningu og starfsfólk móttöku veitir fúslega upplýsingar um við hverju megi búast í sýningarsölum. Oftast er safnið rólegur staður til að heimsækja en stundum eru til dæmis myndbandsverk með hljóði sem geta valdið áreiti. Lýsing í sölunum er missterk eftir atvikum og stundum notuð flúrlýsing.  

Róleg rými

Á Kjarvalsstöðum eru sýningarsalirnir sjálfir rólegustu rýmin. Í miðrýminu er gjarnan meiri erill, tengdur kaffihúsi, móttöku og hugmyndasmiðju.

Leiðsagnir

Listasafn Reykjavíkur auglýsir reglulega sérstaka opnunartíma fyrir fólk með einhverfu eða skynúrvinnsluvanda. Þá er áreiti á sýningum stillt með þarfir hópsins í huga (t.d. ljós og hljóð).

Heimsókn í safnið

Smellið hér til að finna félagsfærnisögu þar sem farið er yfir heimsókn í Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaði, frá því komið er að safninu og þar til farið er út aftur. 

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Blindir og sjónskertir
Blindir og sjónskertir

Gengið er inn um aðalinngang Flókagötumegin. Að dyrunum er rampur og hurðin opnast sjálfkrafa út á við. Ekki er hljóðmerki frá dyrum. Í dyragætt er þröskuldur sem starfsfólk setur ramp yfir eftir þörfum. Þegar inn er komið blasir móttakan við og safnbúð á hægri hönd.

Leiðsöguhundar

Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.

Leiðsagnir

Reglulega er boðið upp á leiðsagnir fyrir blinda og sjónskerta á sýningarstöðum safnsins. Tímasetning hverrar leiðsagnar er auglýst með góðum fyrirvara.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Heyrnarskertir og heyrnarlausir
Heyrnarskertir og heyrnarlausir

Leiðsagnir

Reglulega er boðið upp á Döff-leiðsagnir á táknmáli á sýningarstöðum safnsins. Tímasetning hverrar leiðsagnar er auglýst með góðum fyrirvara.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Ýmsir hópar
Aðrir hópar

Listasafn Reykjavíkur tekur á móti fjölbreyttum hópum og leitast af fremsta megni við að mæta þörfum þeirra. Hefur hópurinn þinn heimsótt safnið?

Meðal þeirra sem koma reglulega á safnið eru:
Klúbburinn Geysir
Hlutverkasetrið
Dagþjálfun fólks með heilabilun
Hópar á vegum Rauða krossins
Ljósið
Virknihópur Reykjalundar
Ýmsir starfsmannahópar

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.