Aðgengi í Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús stendur við Tryggvagötu 17. Í Hafnarhúsi er lögð áhersla á sýningar á framsækinni list eftir viðurkennda innlenda og alþjóðlega samtímalistamenn. Hafnarhúsið eru heimkynni Errósafnsins og þar má alltaf ganga að sýningum listamannsins vísum. 

Tímalengd heimsóknar

Gott er að gera ráð fyrir 40-60 mínútum í heimsókn í Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús.

Heimsókn í Hafnarhús
Upplýsingar (i)

Inngangur

Inngangur í Hafnarhús er frá Tryggvagötu. Þar er rennihurð sem opnast sjálfkrafa og er aðgengi án þröskulda. Þegar inn er komið blasir við móttaka á vinstri hönd og safnbúð á hægri hönd.

Bílastæði

Nokkur bílastæði eru bakvið Hafnarhúsið Geirsgötumegin, aðgengileg frá Tryggvagötu. Einnig er fjöldi bílastæða í bílastæðahúsi á Hafnartorgi sem er aðgengilegt frá Geirsgötu og í bílastæðahúsinu Vesturgötu 7. Allt eru þetta gjaldskyld bílastæði á vegum Reykjavíkurborgar.

Hjól og rafskútur

Hjólastandar eru í Grófinni við Borgarbókasafnið.

Almenningssamgöngur

Strætisvagnar nr. 1, 3, 6, 11, 12, 13, 14.

Barnakerrur

Í Hafnarhúsi er hægt að geyma barnavagna og fá lánaðar léttar kerrur. Stórir barnavagnar eru ekki leyfðir í sýningarsölunum af öryggisástæðum.

Fatahengi og læstir skápar

Hægra megin við miðasöluna eru læstir skápar fyrir töskur og bakpoka. Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferðarmiklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum af öryggisástæðum. Fatahengi má finna inn af ganginum þar sem skáparnir eru.

Salerni

Salerni má bæði finna á jarðhæð við miðasöluna og á 2. hæð við kaffiaðstöðuna. Salerni fyrir hreyfihamlaða eru vinstra megin við miðasölu á jarðhæð og á sama stað og hin salernin á 2. hæð.

Lyftur

Lyfta er á milli hæða safnsins, á móti innri stiganum á jarðhæðinni.

Stólar/aðstaða til að setjast niður

Sýningarnar breytast reglulega en venjulega má gera ráð fyrir bekk til að setjast á í öllum sýningarsölum. Ef ekki er bekkur eru kollar sem gestir geta beðið um í móttöku safnsins. 

Nestisaðstaða

Á 2. hæð er aðstaða til að setjast niður og fá sér nesti og hvíla sig. Þar er venjulega kaffi og vatn í boði fyrir gesti.

Fjölnotasalur

Á jarðhæð, til móts við Portið, er fjölnotasalurinn. Hann er notaður fyrir fundi, fyrirlestra, málþing, smiðjur og aðra viðburði. Enginn þröskuldur er í fjölnotasalinn.

Stofan

Til móts við innganginn á jarðhæð, norðan megin í safninu, er Stofan. Þar er venjulega lítið áreiti og gott að slaka á. Í stofunni er bókasafn og venjulega bækur og annar fróðleikur sem tengist sýningunum hverju sinni. Einnig er þar aðstaða fyrir fjölskyldur og börn en þar er að finna liti og blöð ásamt einhverjum leikföngum.

Leiðsagnir

Reglulega eru haldnar leiðsagnir á einstökum sýningum og eru þær auglýstar sérstaklega. Starfsmenn safnsins taka vel á móti hópum eftir samkomulagi. Smellið hér til að fá pplýsingar um dagská safnsins.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Hreyfihamlaðir
Hreyfihamlaðir

Gott aðgengi er fyrir hjólastóla í húsinu og á flestum sýningum. Gengið er inn í safnið á jarðhæð. Engir þröskuldar eru á inngangi og opnast dyr sjálfkrafa. Lyfta er á jarðhæð hússins, á móti stiganum sem er fjær innganginum inn í safnið.

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru í Grófinni sem er vinstra megin við innganginn inn í Hafnarhúsið.

Hjólastólar

Einn hjólastóll er í boði, í fatahengi á jarðhæð. Frekari upplýsingar fást í móttöku safnsins. 

Stólar/aðstaða til þess að setjast niður á sýningum

Sýningarnar breytast reglulega en venjulega má gera ráð fyrir bekkjum í öllum sýningarsölum. Ef ekki er bekkur eru kollar sem gestir geta beðið um í móttöku safnsins. 

Salerni

Salerni má bæði finna á jarðhæð við miðasöluna og á 2. hæð við kaffiaðstöðuna. Salerni fyrir hreyfihamlaða eru vinstra megin við miðasölu á jarðhæð og á sama stað og hin salernin á 2. hæð.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Einhverfir og fólk með skynúrvinnsluvanda
Skynvinnsla

Í almennum heimsóknum á Listasafn Reykjavíkur gildir aðgöngumiði í 24 klukkustundir svo að hægt er að koma og fara í öll þrjú safnhúsin á þeim tíma; Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn.

Áreiti

Áreiti er misjafnt eftir hverri sýningu og starfsfólk móttöku safnsins getur upplýst gesti hverju sinni um hvernig sýningu megi búast við. Oftast er safnið rólegur staður til að heimsækja en stundum eru myndbandsverk með hljóði sem geta valdið áreiti. Lýsing í sölunum getur verið sterk og er stundum um flúrlýsingu að ræða.  

Róleg rými

Til móts við innganginn á jarðhæð, norðan megin í safninu, er Stofan. Þar er venjulega lítið áreiti og gott að slaka á. Í stofunni er bókasafn og venjulega bækur og annar fróðleikur sem tengist sýningunum hverju sinni. Einnig er þar aðstaða fyrir fjölskyldur og börn en þar er að finna liti og blöð ásamt einhverjum leikföngum.

Á 2. hæð er aðstaða til að setjast niður og fá sér nesti og hvíla sig. Þar er venjulega kaffi og vatn í boði fyrir gesti.

Leiðsagnir

Listasafn Reykjavíkur auglýsir reglulega sérstaka opnunartíma fyrir fólk með einhverfu eða skynúrvinnsluvanda. Þá er áreiti á sýningum stillt með þarfir hópsins í huga (t.d. ljós og hljóð).

Heimsókn í safnið

Smellið hér til að finna félagsfærnisögu þar sem farið er yfir heimsókn í Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, frá því komið er að safninu og þar til farið er heim aftur.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Blindir og sjónskertir
Blindir og sjónskertir

Gengið er inn í safnið á jarðhæð. Engir þröskuldar eru á inngangi og opnast dyr sjálfkrafa. Lyfta er á jarðhæð hússins, á móti stiganum sem er fjær innganginum inn í safnið.

Leiðsöguhundar

Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.

Leiðsagnir

Reglulega er boðið upp á leiðsagnir fyrir blinda og sjónskerta á sýningarstöðum safnsins. Tímasetning hverrar leiðsagnar er auglýst með góðum fyrirvara.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Heyrnarskertir og heyrnarlausir
Hreyfihamlaðir

Leiðsagnir

Reglulega er boðið upp á leiðsagnir á táknmáli á sýningarstöðum safnsins. Tímasetning hverrar leiðsagnar er auglýst með góðum fyrirvara.

Vinsamlegast hafið samband í síma 411-6400 eða sendið póst á listasafn(hjá)reykjavik.is fyrir frekari upplýsingar.

Ýmsir hópar
Aðrir hópar

Listasafn Reykjavíkur tekur á móti fjölbreyttum hópum og leitast af fremsta megni við að mæta þörfum þeirra. Hefur hópurinn þinn heimsótt safnið?

Meðal þeirra sem koma reglulega á safnið eru:
Klúbburinn Geysir
Hlutverkasetrið
Dagþjálfun fólks með heilabilun
Hópar á vegum Rauða krossins
Ljósið
Virknihópur Reykjalundar