Aðgengi

Listasafn Reykjavíkur ber sig eftir því að tryggja gott aðgengi í safnhúsin sín og hafa sýningar og viðburði aðgengilega öllum. Á þessari síðu er að finna upplýsingar um almennt aðgengi sem og fyrir einstaklinga og hópa með sérþarfir. Listasafn Reykjavíkur er til húsa á þremur stöðum og er síðunni skipt upp eftir safnhúsum. Við tökum með ánægju á móti öllum fyrirspurnum og ábendingum varðandi aðgengi í gegnum netfangið listasafn(hjá)reykjavik.is.