2. febrúar 2018 - 21:00
Safnanótt: Leiðsögn sýningarstjóra um sýninguna List fyrir fólkið

Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og sýningarstjóri sýningarinnar List fyrir fólkið verður með leiðsögn á Safnanótt kl. 21.00.
Sýningin spannar feril myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar, allt frá því að hann nam tréskurð hjá Ríkarði Jónssyni til síðustu ára listamannsins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni þar á meðal verk höggvin úr tré, steinsteypu og brons. Á sýningunni eru jafnframt frummyndir þekktra verka sem stækkuð hafa verkið og sett upp víða um land.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Verð viðburðar kr:
0