Innrás II: Leiðsögn listamanns – Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter

Verk Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter eru allt í senn rómantísk, kjánaleg, fyndin og falleg. Hún hefur leikið sér með andstæður, fínlega efnisnotkun og handverk ásamt ofhlæði og afkáraleika.
Árið 2018 eru fyrirhugaðar fjórar innrásir inn í sýninguna List fyrir fólkið í Ásmundarsafni, þar sem völdum verkum Ásmundar Sveinssonar er skipt út fyrir verk starfandi listamanna.
Fjórum listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín á sýningunni í einkasamtali við verk Ásmundar. Það eru Guðmundur Thoroddsen, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Margrét Helga Sesseljudóttir og Matthías Rúnar Sigurðsson. Öll vinna þau skúlptúra í ólík efni og veita verk þeirra áhugaverða sýn á þróun þrívíðrar myndlistar, efnisval og viðfangsefni.
Aðgöngumiði á safnið gildir.