Vefl­ista­verk Júlíönu Sveins­dóttur og Anni Albers: Lóðrétt / lárétt

Júlíana Sveinsdóttir, Röggvateppi Rya frá 1965-66.

Veflistaverk Júlíönu Sveinsdóttur og Anni Albers: Lóðrétt / lárétt

Kjarvalsstaðir

-

Samhliða starfi sínu sem málari átti Júlíana Sveinsdóttir (1889-1966) farsælan og mjög athyglisverðan feril sem listvefari og fjallar sýningin um þann hluta ferils hennar. Hér eru veflistaverk Júlíönu sýnd ásamt verkum þýska Bauhausvefarans og myndlistarmannsins Anni Albers (1899–1994) sem var einn áhrifamesti veflistamaður síðustu aldar. Bæði Júlíana og Anni byrjuðu fyrir tilviljun að vefa og í stað þess að nota hefðbundna tækni fóru þær eigin leiðir og voru óhræddar við að gera tilraunir í óhefðbundin efni.

Sýningarstjóri er Ingibjörg Jónsdóttir, meðsýningarstjóri er Sigríður Guðjónsdóttir.

Sýningin er haldin í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi..

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Ingibjörg Jónsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort