Sept­ember - Septem

September - Septem

September - Septem

Kjarvalsstaðir

-

Septem hópurinn heldur yfirlitssýningu. Í sýningarskrá er sagt að upphaf listsýninga á vegum samtaka sem kenndu sig við september má rekja til ársins 1947, en þá munu samtökin hafa verið stofnuð. Frá árinu 1952 til 1974 varð hlé á samsýningum þessa hóps en margir þeirra sem höfðu talist til hans stofnuðu þá sýningarhópinn "Septem" og hefur sá hópur staðið að listsýningum svo til árlega síðan.

Þessi samtök hafa haft á að skipa myndlistarmönnum sem fremstir stóðu í listalífi hérlendis, höfðu sótt menntun sína víðs vegar um heim. Eins og oft vill verða um listmenn, sem búa yfir skapandi afli og fara ótroðnar slóðir, þurftu þeir oft á brattann að sækja..