A poster­i­ori: Hús, högg­mynd

A posteriori: Hús, höggmynd

A posteriori: Hús, höggmynd

Ásmundarsafn

-

Á sýningunni A posteriori sem er latneskur frasi frá fyrri hluta 17. aldar og þýðir ,,af því sem á eftir kemur“ eru valin listaverk með nýstárlegar tilvísanir í hinar ýmsu byggingar og hús. Alls eiga átta listamenn verk á sýningunni sem þeir hafa gert ýmist út frá raunverulegri eða ímyndaðri byggingarlist sem endurspegla liðna tíð.

Sjálft Ásmundarsafn er hluti af sýningunni bæði sem hús og höggmynd. Ásmundur byggði húsið á sama tíma og hann vann margar af þeim höggmyndum sem nú standa í garðinum. Þá verða sett upp minni útgáfur af höggmyndunum í garðinum en þau spila bæði saman við verkin fyrir utan húsið og við verk annarra listamanna á sýningunni..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarskrá

Sýningarstjóri/-ar

Yean Fee Quay

Listamenn

Boðskort

Sýningarskrá JPG