Örn Þorsteinsson

Örn Þorsteinsson

Örn Þorsteinsson

Kjarvalsstaðir

-

Örn Þorsteinsson er myndhöggvari í hinni upphaflegu merkingu þess orðs, þar sem hann heggur listaverk úr steinum náttúrunnar. Í hefðbundnu steinhöggi má segja að listamaðurinn sé að leysa úr læðingi það sem leynist innan í efninu; þar sem áður var brotakennt yfirborð náttúrunnar koma í ljós form, verur og töfraheimar, myndir sem höggnar eru úr steini.

Á sýningunni getur að líta fjölda höggmynda, sem Örn hefur verið að skapa úr íslensku grjóti á síðustu árum. Stærstu verkin eru úr grásteini úr Skagafirði, þar sem sæbarið fjörugrjótið hefur orðið að verum, formum og dýrum úr furðuheimum ímyndunaraflsins.

Minni höggmyndir laða fram ekki síðri ævintýraveröld fyrirbæra og dýra, sem áhorfandinn heillast af..