Lúður­hljómur í skókassa - Gjörn­ingar Magnúsar Páls­sonar 1980 – 2013

Lúðurhljómur í skókassa - Gjörningar Magnúsar Pálssonar 1980 – 2013

Lúðurhljómur í skókassa - Gjörningar Magnúsar Pálssonar 1980 – 2013

Hafnarhús

-

Magnús Pálsson hefur verið einn áhrifamesti listamaður hér á landi síðustu sex áratugi og hefur alla tíð starfað á mörkum leikhúss, tónlistar og myndlistar. Sem leikmyndahönnuður á 6. áratug síðustu aldar kom hann fram með annars konar formvitund og nútímalegri sýn á leikhúsið en íslenskir áhorfendur áttu að venjast.

Hann deildi um nokkurra ára skeið vinnustofu í Reykjavík með listamanninum Dieter Roth og saman voru þeir leiðandi í miklum umbreytingum sem áttu sér stað í íslenskri myndlist á sjöunda og áttunda áratugnum.

Magnús er þekktastur fyrir skúlptúra sem byggjast á gjörningum sem hann gerði á 8. áratug síðustu aldar en einnig fyrir aðra gjörninga sem hann hefur gert síðustu þrjá áratugi. Stærsta áhugamál hans og viðfangsefni margra verka eru hljóð og hrynjandi tungumálsins og hið rýmisbundna form þess, en leikur og grín eru aldrei víðs fjarri. Listahátíð í Reykjavík og Listasafn Reykjavíkur standa saman að yfirlitssýningu á verkum Magnúsar í nánu samstarfi við hann sjálfan. Á sýningunni er hið skapandi tilraunarými á milli listgreina, eins og það hefur birst í gjörningum Magnúsar, gert lifandi og aðgengilegt fyrir áhorfendur.

Hinir margvíslegu þræðir sem verk hans hverfast um eru endurtúlkaðir af tónskáldum, leikurum, myndlistarmönnum og listnemum.

Sýningin var smám saman til fyrir augum áhorfenda vikuna 18. - 25. maí, samhliða því að fimm gjörningar Magnúsar voru endurfluttir í nýrri mynd og nýtt verk, Stuna, frumflutt. Sýningarstjórar: Hanna Styrmisdóttir og Jón Proppé..

Myndir af sýningu

Ítarefni

Sýningarskrá

Sýningarstjóri/-ar

Hanna Styrmisdóttir , Jón Proppé

Listamenn

Boðskort

Sýningarskrá JPG