Kristján Stein­grímur Jónsson

Kristján Steingrímur Jónsson

Kristján Steingrímur Jónsson

Kjarvalsstaðir

-

Á sýningunni eru ný málverk eftir Kristján Steingrím Jónsson. Á undanförnum misserum er óhlutbundna málverkið á ný komið í sviðsljósið meðal yngri myndlistramanna. Kristján Steingrímur Jónsson er einn þeirra listamanna sem hafa tileinkað sér óhlutbundið myndamál, en þá með nýjum áherslum þar sem hann notfærir sér aðferðafræði og myndhugsun konsept-listarinnar.

Kristján Steingrímur er fæddur 1957, nam við MHÍ 1977-81 og við Hochschule für Bildende Künste í Hamborg. Hann hefur haldið 11 einkasýningar á árunum 1981-95 og verið með í 17 samsýningum á árunum 1982-95..