Kjar­val: Úr safni Jóns Þorsteins­sonar og Eyrúnar Guðmunds­dóttur

Kjarval: Úr safni Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur

Kjarval: Úr safni Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur

Kjarvalsstaðir

-

Sýning á verkum eftir Kjarval úr safni Jóns Þorsteinssonar og ekkju hans Eyrúnar Guðmundsdóttur. Á sýningunni gefur að líta mjög gott þversnið af list Kjarvals, allt frá hinum mögnuðu landslagsmyndum, sem flestir tengja nafni hans, uppstillingum og blómum, sem varð afar ríkulegt efni í höndum listamannsins, til sterkra persónumynda ungra drengja jafnt sem stórbænda og til þeirra ævintýraheima anda og huldufólks, sem byggja íslenskt landslag og Kjarval tengdi svo sterklega við landið. Á sýningunni gefur að líta mjög gott þversnið af list Kjarvals, allt frá hinum mögnuðu landslagsmyndum, sem flestir tengja nafni hans, uppstillingum og blómum, sem varð afar ríkulegt efni í höndum listamannsins, til sterkra persónumynda ungra drengja jafnt sem stórbænda og til þeirra ævintýraheima anda og huldufólks, sem byggja íslenskt landslag og Kjarval tengdi svo sterklega við landið. Einnig eru á sýningunni nokkrar myndir þar sem Kjarval tekst á við geometríu og kúbisma á sinn sérstaka hátt, sem er ef til vill síst þekkti þátturinn í hans myndlist..

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Sýningarskrá

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort

Sýningarskrá JPG